
Svipmynd frá generalprufunni í morgun. Ljósm. bbm
Leikskólabörn héldu tónleika með tónlistarskólanemum
Í morgun fór fram generalprufa í íþróttahúsinu við Vesturgötu þar sem börn af leikskólum á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit ásamt nemendur Tónlistarskóla Akraness komu fram. Aðal tónleikarnir verða svo klukkan 14 í dag á sama stað. Börnin syngja við undirleik hljómsveitar úr Tónlistarskóla Akraness.