Haukur Þór Hauksson rekstrarhagfræðingur og bóndi í Fornastekk

Haukur Þór mun leiða lista Miðflokksins í Borgarbyggð

Miðflokkurinn mun bjóða fram í fyrsta sinn nú í vor í sveitarstjórnarkosningum í Borgarbyggð – og stefnir hátt. Haukur Þór Hauksson rekstrarhagfræðingur og bóndi í Fornastekk í Stafholtstungum mun leiða listann. „Já, það er rétt það hefur verið leitað til mín um að leiða framboðið og ég reikna með að gera það. Mér hefur fallið vel málflutningur Miðflokksins. Það er margt frambærilegt fólk í sveitarfélaginu sem styður flokkinn og kemur að þessu framboði. Við munum kynna listann í heild sinni eftir páska,“ segir Haukur Þór í tilkynningu til Skessuhorns.

Engar vindmyllur

„Það þarf að taka vel á í Borgarbyggð á næsta kjörtímabili. Fjárhagur sveitarfélagsins hefur gjörbreyst til hins verra á síðasta kjörtímabili og heildar skuldir hafa aukist um meira en 100% og eru orðnar skuggalegar. Við munum rífa vel í handbremsuna þar,“ segir Haukur. „Varðandi uppbyggingu Vindmylluvera í héraðinu hafa íbúar. Þeir hafa hins vegar aldrei fengið skýr svör frá Sjálfstæðis- né Framsóknarfólki um hvert þessir flokkar stefni í þeim málum. Okkar svar er hins vegar ótvírætt; segjum engar vindmyllur á hálsum Borgarfjarðar. Punktur. Engar vindmyllur á okkar vakt.“

Sitja uppi með svarta Pétur

Haukur segir jafnframt að það þurfi að marka stefnu í skólamálum og taka á málum varðandi búsetu flottamanna á Bifröst. „Af miklum rausnarskap sínum samdi Borgarbyggð við ríkisvaldið og Rauða krossinn um móttöku flottamanna. Stuðningur þessara aðila hefur síðan horfið og sveitarsjóður situr uppi með tuga milljóna kostanað á hverjum mánuði. Nú þarf að semja við rikið um lausn á þessum málum. Það er ekki sanngjarnt að lítið sveitarfélag sitji uppi með þennan kostnað. Hitt er síðan alveg ljóst að ef Borgarbyggð situr uppi með þennan kostnað til lengri tíma, þá mun í næstu mannúðarkrísu ekkert sveitarfélag ganga til samstarfs við Ríkið og Rauða krossinn. Ráðamenn geta bókað það.“

Ætlum að láta til okkar taka

Þá segir Haukur að Miðflokkurinn hafi áhuga á að lækka fasteignagjöld. „Fasteignagjöld hafa snarhækkað í kjörfar hækkandi fasteignaverðs. Sveitarstjórnarmenn hafa látið sér það vel líka að látið íbúana svitna og kerfið fitna. Á því munum við taka. Vegamál eru einnig stórt mál, en segja má að ekkert hafi gerst í vegamálum í sveitarfélaginu síðan fyrir hrun. Beita þarf margföldum þrýstingi á ríkið að eitthvað verði að hafst til að tryggja öryggi og mannsæmandi vegi í sveitafélaginu. En fyrst og fremst finnst mér vænt um þetta samfélag,“ segir Haukur Þór. „Borgarbyggð er spennandi sveitarfélag sem staðsett er í fegursta og söguríkasta héraði landsins, örskammt frá höfuðborginni. Hér er nægt landrými, mikill mannauður og tækifærinn óþrjótandi. Við í Miðflokknum munum tala við fólk og kynna okkar mál á næstu vikum og fyrst og fremst hlusta á fólk, en við erum komin hér til að láta til okkur taka og gera gagn.“