
Ekkert ferðaveður fyrri part fimmtudags
Veðurstofan hefur breytt viðvörun fyrir morgundaginn úr gulri í appelsínugula fyrir spásvæðinu Faxaflóa, Suðurland og miðhálendið. Ekkert ferðaveður er á þeim tíma sem viðvörun er með þeim hætti. Við Faxaflóa gildir viðvörun frá klukkan 07 í fyrramálið og til klukkan 13 og er svohljóðandi: „Suðaustan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu eða slyddu með slæmu skyggni og versnandi færð. Ekkert ferðaveður. Einnig er hætta á foktjóni og er fólk er hvatt til að tryggja lausamuni.“
Í hugleiðingu veðurfræðings Vegagerðarinnar segir: "Gengur í suðaustan storm í fyrramálið með snjókomu og lélegu skyggni, og síðar rigningu. Hviður yfir 35 m/s á Reykjanesbraut, og yfir 45 m/s á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og undir Eyjafjöllum. Stórhríð á Hellisheiði og í Þrengslum. Veðrið gengur niður á þessum slóðum um og eftir hádegi, en víða hríð á fjallvegum um norðanvert landið þá og snarpar vindhviður í Öræfum. Lægir um land allt annað kvöld."