Heiðar ásamt beitningarmönnum sínum. Ljósm. AF

Afnám línuívilnunar kemur sér illa

Heiðar Magnússon, útgerðarmaður og skipstjóri á línubátnum Brynju SH, sem er gerð út á landbeitta línu, segir i samtali við Skessuhorn að fyrirhugað afnám línuívilnunar komi sér mjög illa fyrir smærri útgerðir og að það sé bagalegt að ráðgert sé að taka hana af. „Bátar sem eru á krókaveiðum hafa ekki marga kosti; annað hvort að vera á línu eða handfærum.“ Þá segir hann mikinn kostnað fólginn í að vera á landbeittri línu og er til dæmis beitukostnaðurinn mikill. „Smokkfiskur sem er notaður í beitu er kominn í hátt í 700 krónur á kílóið, eða svipað verð og hefur að undanförnu verið fyrir þorsk. Beinn kostnaður hjá mér bara við að fara á sjó með 32 bala er því um 400 þúsund krónur,“ segir Heiðar.