
Keppendur þungt hugsi yfir næsta leik. Ljósm. tfk
Vesturlandsmótið í skák fór fram í FSN
Taflfélag Snæfellsbæjar hefur staðið fyrir hinum ýmsu skákviðburðum og keppnum undanfarin misseri. Mikil gróska hefur verið í skákinni í Ólafsvík og Grundarfirði eftir að Sigurður Scheving fór af stað með skipulagðar æfingar fyrir unga sem aldna en hann kom Taflfélagi Snæfellsbæjar á legg haustið 2022. Síðan hefur mikil starfsemi verið í félaginu og iðkendum alltaf að fjölga. Þorsteinn Hjaltason og Sigurrós Sanda Bergvinsdóttir hafa verið honum innan handar með unglingastarfið og haldið utan um þetta með Sigurði.