
Umferðaröngþveyti skapaðist við Hafnarfjall
Síðdegis í gær og fram á kvöld sköpuðust mjög hættulegar aðstæður á þjóðveginum við Hafnarfjall. Gul viðvörun var í gildi frá klukkan 16 til 22 vegna norðan hvassviðris samhliða snjókomu. Á köflum var skyggni lítið sem ekkert. Vindur stóð þvert á veginn af fjallinu og þá fraus yfirborð vegarins þannig að hann var sem eitt stórt skautasvell. Staðvindur var 20 metrar á sekúndu en 30 m/sek í hviðum. Dæmi voru um að bílar, sem ekki voru á nagladekkjum, fykju úr stað jafnvel þótt þeir stæðu kyrrstæðir. Átti það ekki síst við flutningabíla og hópferðabíla sem taka á sig mikinn vind. Lentu því stór sem smærri ökutæki utan vegar eða föst í vegköntum. Stór hluti ökumanna voru erlendir ferðamenn, allsendis óvanir umferð af þessu tagi, kunnu jafnvel ekki að kveikja ljósin á bílum sínum til að næsti ökumaður sæi þá.
Um klukkan 18 voru björgunarsveitir beðnar um að koma fyrir lokunarpóstum þannig að fleiri bílar færu ekki fyrir fjallið. Um klukkustund síðar voru fjórar björgunarsveitir á sunnanverðu Vesturlandi beðnar sökum erfiðra aksturs- og veðurskilyrða að koma ökumönnum og farþegum í bílum til aðstoðar. Fjölmörg dæmi voru um að ökumenn treystu sér ekki til að aka lengra. Meðal hundruða bíla voru rúta og strætisvagn og kallaði það á umfangsmikil viðbrögð björgunarsveita í ljósi fjölda fólks. Ferðafólki var boðið að leita skjóls á gisti- og veitingastaðnum Laxárbakka, þar sem það dvaldi þar til veðrið gekk niður. Einn farþegi var fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar. Nokkrir bílar lentu saman og var því um talsvert eignatjón að ræða.
