Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.

Leggur grunn að Stofnun atvinnuveganna

Lagt hefur verið fram frumvarp á Alþingi sem leggur grunn að því að þrjár stofnanir; Matvælastofnun, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs, verða lagðar niður og starfsemi þeirra sameinuð í nýrri Stofnun atvinnuveganna. Það er Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra sem leggur þetta til. Samhliða þessari breytingu færist matvælaeftirlit frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaganna til nýrrar stofnunar. Hin nýja stofnun mun starfa að stjórnsýsluverkefnum á sviði sjávarútvegs, stjórnunar fiskveiða, lagareldis, lax- og silungsveiða, fiskræktar, matvælamála, dýravelferðar og heilbrigði dýra og plantna. Miðað er við að lögin taki gildi 1. janúar 2027.