Holtavörðuheiðarlína 1 á að vera 220 þúsund volta loftlína með tvöföldum leiðara, hér er tilgátumynd af Holtavörðuheiði. Ljósm. Landsnet

Frestur til að mótmæla eignarnámi

Næstkomandi fimmtudag, 26. mars, rennur út frestur til að gera athugasemdir í Samráðsgátt stjórnvalda um fyrirhugaða lagasetningu sem m.a. er ætlað að flýta uppbyggingu raforkuinnviða. Þar leggur Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- og orkuráðherra til að landeigendur geti ekki komið í veg fyrir þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir með því að banna þær á landi sínu.

Skessuhorn hefur undanfarnar vikur fjallað um þessi mál og Borgarbyggð hefur þegar skilað umsögn.

Málið má nálgast á slóðinni: https://island.is/samradsgatt/mal/4203