Benda sérstaklega á viðvörun vegna fimmtudags

Í morgun gaf Veðurstofa Íslands út gula veður viðvörun fyrir landið allt á fimmtudaginn vegna suðaustan hríðarbyls. Viðvörunin tekur gildi klukkan fimm að morgni fimmtudags og gildir til klukkan 18 sama dag. „Viðvörunin hefur nú verið uppfærð og í fyrramálið verða gerðar viðvaranir fyrir hvert spásvæði út frá því hvernig veðurspá er þar og fyrir hvaða tíma viðvörunin gildir,“ segir í tilkynningu.

Núverandi texti er svohljóðandi:

Viðvörun fyrir allt Ísland - Suðaustan hríðarbylur (Gult ástand) 26. mars kl. 05:00 – 18:00

Suðaustan stormur eða rok, 18-28 m/s með talsverðri snjókomu eða slyddu gengur norðaustur yfir landið á fimmtudag. Einnig má búast við mjög hvössum viðhviðum við fjöll, 35 – 45 m/s. Veðrið fer að ganga niður suðvestan til á landinu um hádegi, en norðaustan til á landinu um kvöldið. Samgöngutruflanir eru líklegar, lokanir á vegum og tafir í flugsamgöngum. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám,“ segir í tilkynningu frá vakthafandi veðurfræðingum, þeim Heru Guðlaugsdóttur og Kristínu Hermannsdóttur.