Tilboð opnuð í grasslátt

Þrjú tilboð bárust Akraneskaupstað í verkefnið „grassláttur 2026“. Garðlist ehf átti lægsta boð; 101.115.000 krónur. Garðaþjónusta Sigurjóns bauð 102.960.000 krónur. Loks bauð Gísli Jónsson ehf. 171.360.000 kr. Umhverfisstjóra var á fundi skipulags- og umhverfisráðs falið að vinna málið áfram.