
Snjókoma og skafrenningur þegar líður á daginn
Gul viðvörun tekur síðar í dag gildi um mest allt landið, raunar allt nema Breiðafjörð. Á spásvæðinu Faxaflóa er viðvörun í gildi frá klukkan 15-22 í kvöld. „Norðaustan 13-20 m/s og snjókoma og skafrenningur með slæmu skyggni. Versnandi færð, einkum á fjallvegum.“