
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra við afhendingu landbúnaðarverðlaunanna 2026 ásamt Hauki Arnarsyni, Arnari Bjarna Eiríkssyni og Berglindi Bjarnadóttur, ábúendum í Gunnbjarnarholti. Verðlaunagripurinn ber heitið „Biðukolla“ og er gerður af Matthíasi Rúnari Sigurðssyni myndhöggvara.
Landbúnaðarverðlaunin í Gunnbjarnarholt
Bændurnir í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, þau Arnar Bjarni Eiríksson og Berglind Bjarnadóttir, tóku í morgun við landbúnaðarverðlaununum fyrir árið 2026 úr hendi Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Verðlaunin voru afhent á Búnaðarþingi sem nú stendur yfir. „Gunnbjarnarholt er dæmi um nútímalegt íslenskt bú þar sem hefðbundinn landbúnaður er sameinaður nýsköpun, beinni sölu og aukinni tengingu við neytendur,“ sagði atvinnuvegaráðherra við afhendingu landbúnaðarverðlaunanna,. „Í heild er Gunnbjarnarholt dæmi um nútímalegt íslenskt bú þar sem hefðbundinn landbúnaður er sameinaður nýsköpun, tækniþróun, þjónustustarfsemi og aukinni tengingu við neytendur.“