
Björgunarsveitir á ferð. Ljósm. úr safni.
Hvessir um miðjan dag og gæti orðið blint til aksturs
Veðurfræðingur Vegagerðarinnar bendir á að lausamjöllin fer af stað þegar hvessir um miðjan dag. „Það verður skafrenningur og blint. Undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og í Öræfum verða snarpar hviður að auki, frá því upp úr hádegi. Bætir einnig í ofankomuna um miðjan dag. Á Reykjanesbraut er reiknað með slæmu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum frá því um kl. 14 og til um kl. 18. Eins á veginum austur fyrir fjall og í Þrengslum. Einnig í Borgarfirði. Norðan- og austantil á landinu fer færð versnandi síðdegis og þar verður einnig víða skafrenningur og ofankoma til fyrramáls.