
Góð loftgæði mælast nú í gamla Samkomuhúsinu
Nýverið var greint frá samningi Sveitarfélagsins Stykkishólms og Aftanskins, félag eldri borgara, um notkun á Samkomuhúsinu. Bæjarstjórn samþykkti samninginn með því skilyrði að óháð og fagleg úttekt færi fram og staðfest yrði að loftgæði í húsnæðinu væru fullnægjandi en ekki heilsuspillandi. Þar hafði áður mælst mygla en gengið var í aðgerðir til að eyða henni.