
Fylgdarakstur um göngin í þessari viku
Unnið verður í Hvalfjarðargöngum dagana 23. til 26. mars frá klukkan 23:00 til kl. 06:00 að morgni alla dagana. Fylgdarakstur verður á meðan að vinna fer fram. „Við hvetjum vegfarendur til að aka með gát þar sem flughált getur verið á meðan unnið er að þrifum. Einnig að fylgja fylgdarökutæki og taka alls ekki fram úr því þar sem stór tæki verða við vinnu í göngunum,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.