Dagvöruverð með því hæsta í Evrópu

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur ákveðið að veita Samkeppniseftirlitinu 30 milljóna króna viðbótarframlag til að vinna að áherslum stjórnar um virka samkeppni á dagvörumarkaði. Á síðustu árum hafa orðið ýmsar breytingar á dagvörumarkaði og þeim fyrirtækjum sem annast sölu, framleiðslu og innflutning á dagvöru.