
Vísur er ný hljómplata Steinunnar Þorvaldsdóttur
Borgfirðingurinn og tónlistarkonan Steinunn Þorvaldsdóttir frá Hjarðarholti gaf á föstudaginn út plötuna Vísur. Þar má finna níu frumsamin kórverk eftir Steinunni sem tekin voru upp í Reykholtskirkju í nóvember og í Seltjarnarneskirkju í janúar. Jón Sigurður Snorri Bergsson sá um upptökur en Borgfirðingarnir Gunnar Árni Hreiðarsson og Jakob Grétar Sigurðason hljóðunni eina lagið sem er við undirleik á plötunni.
Ljóðin eru eftir Guðrúnu Jónsdóttur, Sigríði Ástu Olgeirsdóttir og Sigríði Þorvaldsdóttur sem allar eru Borgfirðingar. Auk þess eiga systurnar Lovísa og Laufey Júlíusdætur, afasystur Steinunnar frá Hítarnesi, hvor um sig tvö til þrjú ljóð á plötunni. Harpa Dís Hákonardóttir heitir svo síðasta ljóðskáldið en hún er fædd 1993 og er verðlauna ljóðskáld úr Kópavogi.
Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Vesturlands og Menningarsjóði Borgarbyggðar.