Það átti vel við að í lokaviðureign mótsins á fyrsta borði tókust Strandamenn á. Guðmundur V Gústafsson og Jón Stefánsson spila hér við sigurvegarana þá Karl og Elías. Ljósm. mm

Strandamenn með öruggan sigur á Borðeyrarmótinu

Það var eftirvænting í röðum briddsspilara fyrir því hvort hægt væri að halda hið árlega Borðeyrarmót í gær. Dagana á undan höfðu vetrarlægðir gengið yfir með tilheyrandi ófærð og lokun fjallvega. En lukkudísirnar reyndust spilurum hliðhollar. Klukkan 9 í gærmorgun var veðrið gengið niður og hægt að opna veginn yfir Holtavörðuheiði.

Uppselt var á mótið, alls 24 pör, og spilað í grunnskólahúsinu á Borðeyri. Spilað var eftir Monrad kerfi, en með því móti er pörum raðað við borð eftir árangri þeirra jafn harðan á mótinu. Fljótlega á mótinu tóku Strandamennirnir Karl Þ Björnsson og Elías Ingimarsson forystu og héldu henni til loka. Uppskáru þeir 63,22%. Í öðru sæti urðu sunnanmennirnir Unnar Atli Guðmundsson og Magnús Þorkelsson með 57,44% skor. Borgfirðingarnir Heiðar Árni Baldursson og Sveinbjörn Eyjólfsson urðu þriðju með 55,27%. Sigurvegarar fengu verðlaunapening að launum, en í útdráttarverðlaun var hægt að vinna úrvals kjötvörur frá Húsavíkurbúinu og Miðhúsabúinu á Ströndum og þátttökugjald á Þorsteinsmót 2026. Mótsstjórar á Borðeyrarmóti voru nafnarnir Ingimundur Jónsson og Ingimundur Pálsson.

Efstu þrjú pör á mótinu. F.v. Magnús, Unnar Atli, Elías, Karl, Sveinbjörn og Heiðar Árni.