
Ný söfnun og aðalfundur framundan hjá Hollvinasamtökum HVE
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) hafa byrjað nýja söfnun til kaupa á fjórum Holter hjartasíritum fyrir heilbrigðisstofnunina. Tækin munu bæta greiningu og þjónustu við sjúklinga um allt Vesturland. Einnig stendur til að kaupa augnlampa (raufarlampa) sem mun verða staðsettur í Ólafsvík. Áætlað verð þessa tækja er rúmar þrjár milljónir króna.
Samhliða söfnuninni boða samtökin til aðalfundar fimmtudaginn 26. mars kl. 16 í salarkynnum sjúkrahúss HVE á Akranesi, þar sem farið verður yfir starfsemi síðasta árs og kynnt nánar hvernig ný tæki munu nýtast í daglegu starfi HVE. Fundurinn er opinn öllum áhugasömum um heilbrigðismál á Vesturlandi.
Minni fyrirhöfn – meiri þægindi fyrir sjúklinga
Augnlampi (raufarlampi) er nákvæmt greiningartæki sem notað er til að skoða fremri hluta augans, meðal annars hornhimnu, lithimnu og augastein. Með slíkum búnaði er hægt að greina augnsjúkdóma og breytingar á auganu fyrr og með meiri nákvæmni, sem bætir þjónustu við sjúklinga á heilsugæslunni. Þetta þýðir í raun að rannsóknir verða þægilegri fyrir sjúklinga, fljótlegri í úrvinnslu og nákvæmari fyrir lækna.
Samfélagið stendur með HVE
Í tilkynningu kemur fram að Hollvinasamtökin hafa frá stofnun afhent tæki og búnað að andvirði um 85 milljóna króna til HVE; allt byggt á stuðningi samfélagsins. „Það er einstakt að upplifa þann samhug sem ríkir á Vesturlandi þegar kemur að heilbrigðisþjónustu. Við fengum frábærar viðtökur einstaklinga, fyrirtækja, sveitarfélaga og félagasamtaka við söfnun á Bipap öndunaraðstoðartæki í lok síðasta árs. Með sameiginlegu átaki getum við áfram tryggt að aðbúnaður og tækjabúnaður sé í fremstu röð,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, formaður Hollvinasamtakanna.
Aðalfundur – opinn öllum
Á aðalfundi Hollvinasamtaka HVE verður farið yfir starfsemi samtakanna, samþykktir ársreikningar og kynnt ný söfnunarverkefni. Sérstök áhersla verður lögð á að útskýra hvernig nýju tækin munu nýtast sjúklingum og starfsfólki HVE. „Allir sem láta sig heilbrigðismál varða eru hvattir til að mæta og taka þátt. Hollvinasamtökin hvetja fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að taka þátt í verkefninu.
Hægt er að gerast félagi og greiða hóflegt árgjald, eða krónur 3000. Hollvinasamtökin eru skráð á almannaheillaskrá, sem þýðir að framlög einstaklinga til samtakanna á bilinu 10.000 til 350.000 krónur á almanaksári koma til lækkunar á útsvars- og tekjuskattstofni. Hjá hjónum og sambúðarfólki allt að kr. 700.000 og allt að 1,5% af rekstartekjum fyrirtækja. Framlög má leggja inn á reikning Hollvinasamtaka HVE: 0326-22-000834 – kt. 510214-0560
Einnig er hægt að fylgjast með starfi samtakanna og skrá sig sem félaga á Facebook-síðunni Vesturlandsvaktin.“
