
Gunnar Ingi og Guðjón skipverjar á Bárði voru að vonum kátir þegar fréttaritari Skessuhorns var á kajanum nú síðdegis. Ljósm. af
Íslandsmet hjá netabáti að falla – myndir
Útlit er fyrir að netabáturinn Bárður SH frá Rifi sé í dag að setja nýtt Íslandsmet. Skipverjar lögðu netin síðdegis í gær skammt utan við Rif. Í morgun var farið til að draga netin. Um hádegisbil var landað úr þremur trossum af átta, um 50 tonnum af óslægðum þorski og núna síðdegis er verið að landa svipuðu magni úr tveimur trossum. Báturinn á þá eftir sigla út að nýju að minnsta kosti einu sinni í dag og draga þær þrjár trossur sem eftir eru. Ef magnið verður ámóta má lauslega áætla að báturinn landa í dag 150-160 tonnum sem er mun meira en gildandi Íslandsmet í dagróðri hjá netabáti.