
Útgáfa Skessuhorns næstu vikur
Skessuhorn verður gefið út miðvikudaginn 25. mars næstkomandi eins og venjulega. Það mun hins vegar EKKI koma út blað í dymbilvikunni miðvikudaginn 1. apríl. Það helgast af því að blað gefið út þann dag myndi lokast inni á pósthúsum og ekki verða borið út í dreifbýlið fyrr en eftir páska. Fyrsta blað eftir páska kemur því út miðvikudaginn 8. apríl. Þeir sem vilja koma á framfæri fréttum eða auglýsingum fyrir páska eru hvattir til að vera í sambandi tímanlega fyrir næstu helgi. Minnt er á netföngin auglysingar@skessuhorn.is en myndir og fréttir sendist á skessuhorn@skessuhorn.is Síminn er sem fyrr 433-5500.