
Of stressaður til að horfa á leikinn
Hann var heldur betur lukkulegur tipparinn sem fékk 13 rétta á Enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag. Seðillinn skilaði honum 17,4 milljónum króna í vinning. Í tilkynningu frá Íslenskum getraunum segir að tipparinn hafi verið orðinn verulega stressaður fyrir síðasta leikinn á getraunaseðlinum, en það var viðureign West Ham og Man. City sem hófst klukkan átta á laugardagskvöldinu.