
Vegir að skemmast og þungatakmarkanir taka gildi
Vegna mikilla slitlagsskemmda hefur Vegagerðin ákveðið að fella úr gildi viðauka og takmarka ásþunga við sjö tonn og tíu tonn frá og með klukkan 12:00 í dag, miðvikudaginn 11. mars, á fjölmörgum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum. Á vegi 60; Vestfjarðavegi frá Dalsmynni að vegamótum Djúpvegar 61 í Króksfirði, verður ásþungi takmarkaður við 7 tonn.
Aðrir vegir með ásþunga takmarkaður við 10 tonn:
54 Snæfellsnesvegi frá Borgarnesi vestur yfir Fróðárheiði og á norðanverðu Snæfellsnesi.
574 Útnesvegi
58 Stykkishólmsvegi
56 Vatnaleið
60 Vestfjarðavegi frá vegamótum Snæfellsnesvegar 54 til Ísafjarðar við Djúpveg 61
51 Akrafjallsvegi að norðan (Akranes – Hringvegur)
50 Borgarfjarðarbraut (Seleyri – Hringvegur við Bauluskála)
68 Innstrandavegur
62 Barðastrandarvegi
63 Bíldudalsvegi
61 Djúpvegi frá Vestfjarðavegi 60 í Króksfirði til Skutulsfjarðar, að Flugvallarvegi 631.