
Sól til framtíðar boðar til aðalfundar
Samtökin Sól til framtíðar halda aðalfund sinn í samkomuhúsinu við Þverárrétt miðvikudaginn 18. mars nk. og hefst fundurinn kl. 19.30.
„Páll Jakob Líndal dr. í umhverfissálfræði flytur erindi á fundinum sem hann kýs að kalla; sálfræðileg áhrif vindmylla í náttúru Íslands. Í erindinu er fjallað um margþætt sálræn áhrif vindmylla þar sem sjónræn áhrif og hljóðvist móta upplifun fólks og geta valdið andlegri vanlíðan líkt og „solastalgia“ eða ógnað sjálfsmynd sem tengist ósnortinni náttúru. Jafnframt er rýnt í hvernig virkt samráð og tilfinning fyrir stjórn getur dregið úr andstöðu,“ segir í tilkynningu.
Guðrún Sigurjónsdóttir er formaður Sólar: „Það er vel við hæfi að slíkt erindi verði flutt í Þverárhlíðinni þar sem fyrirhugað er að reisa vindorkuver á Grjóthálsinum. Umdeilt mælimastur blasir við úr samkomuhúsinu og fundarmenn geta gert sér í hugarlund hvernig hálsinn liti út með 14 vindmyllur og þá að lágmarki jafnmörg blikkandi ljós og hávaða frá spöðum vindmyllnanna í annars friðsælli sveit. Það verður jafnframt fróðlegt að heyra umfjöllun Páls um samráð en samtökin Sól til framtíðar hafa m.a. gagnrýnt samráðsleysi sveitarstjórnar og lagt fram kæru vegna þess að ekki var tekið tillit til umsagna og hagsmuna íbúanna við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins. Sól til framtíðar vill sérstaklega bjóða nýja félagsmenn velkomna á fundinn,“ segir Guðrún Sigurjónsdóttir.