Hjónin Albert Þór Magnússon og Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir eru eigendur verslunarinnar.

Kappahl og Newbie koma í stað Lindex á Akranesi

„Það kemur önnur og enn betri verslun í stað þeirrar sem áður var en ég hvet alla á Vesturlandi til að fylgjast vel með í gegnum klúbbinn okkar,“ segir Albert Þór Magnússon sem opnar nú nýja Kappahl verslun á Akranesi þar sem áður var Lindex við Dalbraut 1. „Við áætlum að opna eigi síðar en í lok mánaðar með opnunarhátíð þar sem verður mikið fjör.“ Albert og Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir  afa, ásamt samstarfsfólki sínu, rekið vinsæla verslun á Akranesi frá árinu 2017.  Albert segir að nú taki nýr og spennandi kafli við þegar verslunin opnar undir merkjum Kappahl og Newbie, með sama öfluga starfsfólkinu og viðskiptavinir verslunarinnar þekkja.