
Esjar SH að taka pokann skammt frá Rifi. Texti og myndir: AF
Ævintýraleg aflabrögð á Breiðafirði – myndir af miðunum
Mjög góð aflabrögð hafa að undanförnu verið í Snæfellsbæ hjá bátum sem hafa róið þaðan. Dragnótarbátar hafa mokfiskað og fékk Hildur SH 56 tonn eftir daginn, Magnús SH 42 tonn og Steinunn SH 30 tonn. Aðrir dragnótarbátar hafa sömuleiðis verið að gera það gott.