
Byssur úr smiðju Steinþórs Matthíasar Stefánssonar.
Áður óþekktur íslenskur byssusmiður kynntur til sögunnar
Byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri 2026 verður haldin um næstu helgi, klukkan 11 – 18 báða dagana. Þar verða m.a. kynntar og sýndar byssur frá Steinþóri Matthíasi Stefánssyni (1891 – 1967) sem nýlegar komu fram. „Um er að ræða einstakan fund í byssu- og iðnsögu Íslands og eru byssur Steinþórs engu líkar. Sonarsonur Steinþórs og nafni, Steinþór Stefánsson, hefur ánafnað Veiðisafninu samtals ellefu haglabyssum og eru níu af þeim smíðaðar af Steinþóri með ýmsum lásgerðum í 16ga. og 12ga. sem og ein ca. .410 minkabyssa.