Skagarokk endurvakið

Dagana 10. og 11. apríl í vor ætla sex hljómsveitir að spila í Bíóhöllinni á Akranesi undir nafninu Skagarokk 2026. Fyrir viðburðinum stendur Ólafur Páll Gunnarsson. Á föstudagskvöldinu verður spilað þungarokk þar sem fram koma: „Black Sabbath Rokkmessa, Múr og Bastarður. Á laugardagskvöldinu verður önnur músík og örlítið léttari, en þar koma fram Hjálmar, Spacestation og Oyama.