Leit stendur yfir að fjórtán ára stúlku

Lögreglan á Vesturlandi auglýsti nú rétt í þessu að leitað væri að 14 ára stúlku, Heklu Agnarsdóttir. Síðast sást til Heklu á Akranesi í dag þriðjudaginn 10. mars klukkan 12:20. „Ef þú hefur upplýsingar um ferðir Heklu eftir þann tíma hafðu þá samband við lögregluna, 112,“ segir í tilkynningu. Björgunarsveitarfólk ásamt lögreglu hafa frá því klukkan 17 í dag leitað Heklu.