Sjávarhæð verður mest við suðvesturströndina. Teikning: Landhelgisgæslan

Hvetja til að hugað verði að bátum og skipum í höfnum

Landhelgisgæslan vekur athygli á því að hvasst er í hafinu suðvestur af landinu og þung alda að byggjast upp. Nú er í gildi stormspá fyrir flest djúpmið í kringum landið og einnig á grunnmiðum frá suðausturmiðum, vestur með landinu að Vestfjarðamiðum. „Veðurspár gera þannig ráð fyrir suðvestan hvassviðri eða stormi á miðum og djúpum sunnan- og vestan við landið fram á morgundaginn og ölduhæð í samræmi við það. Má því gera ráð fyrir nokkrum áhlaðanda við ströndina sunnan- og vestanlands fram á morgundaginn. Þó nú sé minnkandi straumur getur áhlaðandi vegna álandsvinds, ölduhæðar og lækkandi loftþrýstins aukið sjávarhæð umfram útreiknaðar flóðspár og sjór því mögulega flætt upp á bryggjur og gengið á land þar sem ströndin liggur lágt.“ Í þessu ljósi hvetur Landhelgisgæslan til aðgæslu við sjávarsíðuna og að hugað verði að skipum og bátum þar sem súgur getur myndast í höfnum.

Að kvöldi 31. janúar 2025 voru aðstæður ekki ósvipaðar því sem nú er spáð; mjög hásjávað og áhlaðandi við suðvesturströndina. Þá kom Björgunarfélag Akraness eigendum báta til aðstoðar í Akraneshöfn. Ljósm. mm