
Harður árekstur í Norðurárdal
Skömmu fyrir klukkan 11 í dag varð harður árekstur tveggja bíla á þjóðveginum á móts við Rjúpnahæð í Norðurárdal í Borgarfirði. Mikill viðbúnaður viðbragðsaðila var vegna slyssins. Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans og tveir voru fluttir með sjúkrabílum á HVE Akranesi. Upplýsingar um líðan fólksins liggja ekki fyrir.
Lokað var fyrir umferð um Þjóðveg 1 eftir slysið en samkvæmt heimildum Skessuhorns stendur til að opna veginn að nýju fyrir umferð upp úr kl. 13.