Pétur Pétursson yngri að landa úr Bárði. Ljósm. úr safni/af

Miðað við íbúafjölda eru þriðju mestu aflaheimildirnar í Snæfellsbæ

Komin er út ný Glefsa, rafrænt fréttabréf Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem dr. Vífill Karlsson hagfræðingur ritar. Nú fjallar Vífill um kvóta botnfisktegunda á Vesturlandi og deilir kvótanum niður á íbúafjölda í viðkomandi sveitarfélagi. Fram kemur að í Snæfellsbæ jukust aflaheimildir hlutfallslega mest á Vesturlandi frá bankahruni en næst mest í Stykkishólmsbæ. Á því tímabilinu fækkaði aflaheimildum í öðrum sveitarfélögum á Vesturlandi.