
Boðið til vígsluhátíðar á morgun
Á morgun, laugardaginn 28. febrúar, býður Dalabyggð íbúum og öðrum gestum að vera viðstaddir vígslu nýrra íþróttamannvirkja í Búðardal. Viðburðurinn hefst klukkan 13:30. Meðal gesta verða forsetahjónin Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason, Eygló Fanndal Sturludóttir Íþróttamaður ársins 2025, fulltrúar ÍSÍ og UMFÍ, verktakar og fleiri.
Að loknum ávörpum verður boðið upp á köku, kaffi og safa samhliða því að íþróttafólk á öllum aldri úr Dölunum mun sýna þær íþróttir sem nú eru stundaðar í Dölum, svo sem glímu, badminton, körfubolta, fótbolta og boccia. Gestum býðs að ganga um mannvirkin og skoða þá glæsilegu aðstöðu sem þarna er risin.