
Björgunarsveitir komu fjölmörgum til aðstoðar
Frá því síðdegis í gær og fram á rauða kvöld komu björgunarsveitir víða á vesturluta landsins ferðalöngum til aðstoðar. Í Þorlákshöfn þurfti að veita óveðursaðstoð og sömuleiðis þurfti að koma fjórhjólamönnum til aðstoðar á Mosfellsheiði. Um klukkan 18:30 var svo björgunarsveitirnar Húnar á Hvammstanga, Blanda á Blönduósi og Heiðar í Borgarfirði kallaðar út vegna strætisvagns sem hafði lent út af veginum á Holtavörðuheiði. Hátt í 20 björgunarmenn fóru í það verkefni til að koma um 15 manns úr strætisvagninum niður af heiðinni en rúta var þá komin í Staðarskála til að taka við farþegunum, en bílstjórinn var sóttur sunnan að. Eftir að farþegarnir og farangur þeirra höfðu verið flutt í Staðarskála þurfti að aðstoða talsvert fleiri bíla af heiðinni, þrátt fyrir að henni hafi þá verið lokað. Seint í gærkvöldi voru björgunarsveitarmenn enn á heiðinni.
Rétt um hálf átta í gærkvöldi var björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ kölluð út vegna ferðamanna sem höfðu fest bíl sinn á sunnanverðri Fróðárheiði. Björgunarfólk losaði bílinn og ferðamennirnir gátu í kjölfarið komist leiðar sinnar.
Klukkan 20 voru svo Hjálparsveit skáta í Hveragerði og Mannbjörg í Þorlákshöfn, öðru sinni þennan dag, boðaðar út vegna ferðafólks í vandræðum bæði á Hellisheiði og í Þrengslum. Þar var þá orðið nokkuð blint og færð að spillast. Báðum þessum leiðum var lokað og fjölmörgum bílstjórum hjálpað úr ófærð og slæmu skyggni.