
Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust í Dölum á laugardaginn
Vegna nauðsynlegra viðgerða á stofnlögn hitaveitunnar í Dalabyggð verður heitavatnslaust frá klukkan 9:00 til 14:00 á laugardaginn, 14. febrúar. „Áætlað er að áhleyping hefjist aftur um kl. 14:00 og að fullum afköstum verði náð fyrir kl. 20:00. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð Rarik í síma 528-9000,“ segir í tilkynningu.
Ath! Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar var sagt föstudag, en á að vera laugardag. Beðist er velvirðingar á því.