
Tekið á því í ræktinni og klipping í kjölfarið
Skömmu eftir að líkamsræktarstöð World Class var opnuð í gamla íþróttahúsinu við Jaðarsbakka á Akranesi í haust hóf þar starfsemi rakarastofan Studio300 en móðurfyrirtæki þess heitir Vikingblendz. Nafnið vísar til póstnúmersins, en Studio rekur einnig rakarastofur með endingunum 110, 220, 109, 101 og Laugar. Fyrsta Studio rakarastofan var opnuð í gömlu kartöflugeymslunum á Ártúnshöfða árið 2021 og er fyrirtækið því fimm ára. Eigandi Studio300 er Gunnar Malmquist Þórsson rakarameistari. Stólar á stofunni á Akranesi eru fjórir, en Gunnar er með þrjá nema með sér og segir hann nóg að gera, enda hafa viðtökur við World Class verið frábærar á Akranesi og traffíkin sé mikil. Allar rakarastofur Studio eru reknar með leigusamning við World Class og hjá fyrirtækinu starfa um 40 manns, bæði meistarar og nemar.