
Stuttar göngur með skömmum fyrirvara nýjung hjá Ferðafélaginu
Í göngudagskrá Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs fyrir árið 2026 er kynnt sú nýjung að auglýsa stuttar gönguferðir í hverjum mánuði með skömmum fyrirvara seinni hluta vetrar, þegar vitað er að veðurspá er hagstæð. Fyrsta gönguferðin af þessu tagi hefur nú verið auglýst og verður hún gengin í Hvítársíðu næstkomandi laugardag, 14. febrúar. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að upphafsstaður göngu er við tún skammt vestan afleggjara að Gilsbakka og að lagt verði af stað klukkan 13. Gengið verður niður með Litla-Fljóti að Fljótsfossi og síðan niður í gegnum Skógarhraun, sem er neðsti hluti Hallmundarhrauns og er alþakið birkiskógi. Í hrauninu eru upptök Lambeyrarkvíslar og verður henni fylgt að ós við Hvítá, áður en haldið er til baka upp með Hvítá, aftur upp gegnum hraunið og með fram Strípstjörnum, sem eru nokkrar tjarnir í Skógarhrauninu, og að upphafs stað. Gert er ráð fyrir að gangan taki u.þ.b. tvær klukkustundir. Göngustjóri er Sigurður Magnússon frá Gilsbakka.