
Gabríel Snær Gunnarsson. Ljósm. Fótbolti.net/ Hafliði Breiðfjörð
Skagamenn unnu Gróttu í Lengjubikarleik
Karlalið ÍA í knattspyrnu vann sinn fyrsta sigur í Lengjubikarnum í gær þegar liðið heimsótti Gróttu á Seltjarnarnes. Staðan var markalaus í hálfleik en í byrjun þess síðari kom hinn 17 ára Gabríel Snær Gunnarsson Skagamönnum yfir. Steinar Þorsteinsson bætti öðru marki við fyrir gestina nokkrum mínútum síðar, áður en Grímur Ingi Jakobsson minnkaði muninn fyrir Gróttu. Aftur var það svo Gabríel Snær sem skoraði á lokamínútu leiksins og gulltryggði 3-1 sigur Skagamanna.