Brákarey. Ljósm. mm.

Kynntu stöðu mála í Brákarey

Fimmtudaginn 29. janúar var eigendum fasteigna og rekstraraðilum í Brákarey í Borgarnesi boðið til upplýsingafundar um málefni eyjarinnar. Efni hans var að kynna þá vinnu sem nú stendur yfir um enduruppbyggingu Brákareyjar, eins og sagði í fundarboði. PwC mun annast áframhaldandi samskipti og samningagerð við hagsmunaaðila fyrir hönd Borgarbyggðar.