Borað verður þar sem hringurinn er framan við húsin Jaðarsbraut 37 og 39. Ljósm. mm

Jarðhitaleit framundan við Langasand á Akranesi

Veitur hyggjast nú í vor bora eftir heitu vatni til húshitunar á Akranesi. Í þeim tilgangi hyggst fyrirtækið bora rannsóknarholu til að leita eftir heitu vatni. Staðsetning borholunnar verður ofan við sturturnar á Langasandi, framan við húsin Jaðarsbraut 37 og 39. „Frá fimmta áratugnum hefur verið borað á Akranesi til að kanna hvort þar sé að finna heitt vatn. Þessar rannsóknarholur sýna glöggt að það er jarðhiti undir Akranesi. Borholan sem gerð var á holtinu við heimavist Fjölbrautaskóla Vesturlands er 1.400 metra djúp og hitinn 140°C,“ segir í tilkynningu frá Veitum. Framkvæmdin við borholuna við Langasand verður í grenndarkynningu frá 4. febrúar til 4. mars og hægt verður að senda inn athugasemdir í gegnum Skipulagsgátt.