
Fylgdarakstur verður um göngin í nótt
Vegna þrifa og viðhaldsvinnu verður fylgdarakstur í Hvalfjarðargöngum í nótt, aðfararnótt 23. janúar frá miðnætti til klukkan 06:00. „Umferð er stöðvuð við gangamunna uns fylgdarbíll kemur en vegfarendur eru beðnir um að aka með gát þar sem hálka getur myndast við þrifin,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.