
Margrét Björk Björnsdóttir fagstjóri ferðamála hjá SSV. Ljósm. mm
Fulltrúar vestlenskra ferðaþjónustufyrirtækja fjölmenntu á Mannamót – myndasyrpa
Góð mæting og stemning var á árlegu Mannamóti landshlutanna sem haldið var í Kórnum í Kópavogi síðastliðinn fimmtudag. Það eru markaðsstofur landshlutanna sem standa fyrir Mannamóti, en þangað er m.a. boðið starfsfólki ferðaskrifstofa, hótela, ráðamanna, fjölmiðla og annarra sem vilja kynna sér það sem efst er á baugi og nýjungar á vettvangi ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Að þessu sinni voru fulltrúar á fjórða hundrað fyrirtækja í ferðaþjónustu sem kynntu starfsemi sína og um fjörutíu þeirra voru frá Vesturlandi.