
Skallagrímsmenn stóðu í toppliði Hattar – Snæfell með sigur
Það var sannkallaður spennuleikur þegar lið Skallagríms og Hattar mættust í Borgarnesi í 1. deild körfuknattleiksins í gær. Í stuttu máli má segja að leikurinn hafi verið jafn frá upphafi til enda. Eftir fyrsta leikhluta var jafnt 22-22. Í öðrum leikhluta náðu Hattarmenn örlitlu forskoti og leiddu í hálfleik 44-47. Í þriðja leikhluta náðu Skallagrímsmenn frumkvæðinu og í lok hans var staðan 70-68. Fjórði leikhluti var afar spennandi og þegar tæp mínúta var eftir af leiknum var staðan jöfn 85-85. Á lokasekúndum leiksins náðu Hattarmenn að tryggja sér sigurinn 85-89.