
Dæluhús Grábrókarveitu í Norðurárdal.
Notendur Grábrókarveitu boða til fundar
Fulltrúar íbúa á svæði Veitna sem kaupa neysluvatn úr Grábrókarveitu í Norðurárdal hafa boðað til fundar. Fundarefnið er; „framtíð Grábrókarveitu, grugg í neysluvatni og horfur á úrbótum,“ segir í fundarboði. Eins og fram hefur komið í nokkrum fréttum Skessuhorns hefur ríkt óánægja meðal íbúa um gruggugt vatn sem ítrekað kemur frá veitunni. Fundurinn verður haldinn á Hótel Varmalandi fimmtudagskvöldið 8. janúar klukkan 20. Fulltrúar frá Veitum mæta til fundar en Valdimar Leo Friðriksson hefur verið fenginn sem fundarstjóri.