
Gunnar Karl og Marey Ólafía. Til hægri er lógóið sem bar sigur úr býtum og teikning Mareyjar.
Vinningshafar í lógó-hönnunarsamkeppni Peatland LIFEline
Verkefnið Peatland LIFEline efndi til hönnunarsamkeppni á dögunum til að finna lógó sem fangar anda íslensks votlendis – endurheimt og tengingu við náttúruna. Samkeppnin var opin nemendum í hönnun og byggði á frumlegum hugmyndum sem sprottnar voru upp úr 24 uppástungum sem börn og unglingar teiknuðu á Vísindavöku 2025. Hver þátttakandi gat sent inn tvær tillögur með stuttri röksemdafærslu.