Utan vegar í Skorradal. Ljósm. pd

Lenti utan vegar í glærahálku

Fljúgandi hálka er nú á vegum í Borgarfirði. Samhliða þoku hefur náð að frysta og þá er ekki að sökum að spyrja með færð. Bifreiðin á meðfylgjandi mynd valt og hafnaði utan vegar við krossgöturnar í Skorradal nú fyrir hádegi. Tvennt var í bílnum og var flutt undir læknishendur. Bíllinn er skráður í eigu bílaleigu og var ekki á nagladekkjum.