Breytingar vegna fæðingarorlofs

Alþingi samþykkti skömmu fyrir jól frumvarp Ingu Sæland, félag og húsnæðismálaráðherra, um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sorgarleyfi. Eftir gildistöku nýju laganna munu breytingar á fjárhæðum greiðslna til foreldra sem nýta rétt sinn innan fæðingarorlofskerfisins ekki lengur miða við fæðingardag barns, frumættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur, heldur skuli slíkar breytingar eiga við um alla foreldra í fæðingarorlofi og þá sem eiga rétt á slíkum greiðslum þegar breytingarnar taka gildi. Jafnframt munu breytingar á fjárhæðum greiðslna á grundvelli laga um sorgarleyfi eiga við um alla foreldra sem nýta rétt sinn samkvæmt lögunum, óháð því hvenær barnsmissir, andvanafæðing, fósturlát eða makamissir á sér stað.