Tilboð í akstursþjónustu margfalt hærra en kostnaðaráætlun

Akraneskaupstaður bauð í nóvember út akstursþjónustu fyrir kaupstaðinn og Höfða hjúkrunar- og dvalarheimili. Í tilkynningu um útboðið á sínum tíma segir að því sé skipt í tvo samningshluta til að stuðla að aukinni samkeppni og næðu samningshlutarnir yfir samþætta akstursþjónustu og akstur máltíða í samræmi við skilmála útboðslýsingarinnar. Annars vegar var það A hluti þar sem um var að ræða akstur eldra fólks í og úr dagdvöl og akstur eldra fólks og fatlaðs fólks. Hins vegar B hluti þar sem um var að ræða akstur með máltíðir til þjónustuþega Akraneskaupstaðar.