Stjarnan skein skært á Akranesi

Íslandsmeistarar Stjörnunnar í körfuknattleik mættu nýliðum Skagamanna í gærkvöldi í Bónus-deildinni í körfuknattleik í AvAir höllinni á Jaðarsbökkum. Lið ÍA skoraði fyrstu tvö stig leiksins en síðan var leikurinn í stuttu máli sagt Stjörnunnar. Að loknum fyrsta leikhluta var staðan 19-36 og í hálfleik var staðan 43-67. Leiknum lauk svo með sigri Stjörnunnar sem skoraði 115 stig gegn 85 stigum heimamanna.

Stjarnan skein skært á Akranesi - Skessuhorn