
Kosningu um sameiningu sveitarfélaganna lauk laugardaginn 20. september og fór talning fram í Borgarnesi þá um kvöldið. Vinna við að ljúka sameiningunni hefur þó ekki hafist vegna kærumála sem innviðaráðuneytið hefur nú úrskurðað í. Ljósm. mm
Sameining Borgarbyggðar og Skorradalshrepps stendur
Innviðaráðuneytið hefur með tveimur úrskurðum í dag hafnað kærum sem ráðuneytinu bárust um að íbúakosningar um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar yrðu felldar úr gildi. Íbúakosningin þar sem sameiningin var samþykkt með talsverðum meirihluta atkvæða stendur því og sveitarfélögin sameinast því formlega að loknum sveitarstjórnarkosningum 16. maí.